Klettur leggur mikla áherslu á að lágmarka smithættu og fylgja almennum ráðleggingum Almannavarna. Nýjar verklagsreglur eru því í gildi núna til að tryggja öryggi starfsmanna og viðskiptavina og til að veita viðskiptavinum bestu mögulegu þjónustu á þessum tímum. Fyrirtækinu hefur verið skipt upp í aðskilin teymi, samgangur milli starfsmanna er takmarkaður, allt starfsfólk gætir þess að fylgja kröfum varðandi hreinlæti og allir snertifletir eru reglulega sótthreinsaðir.
Breyttar verklagsreglur:
- Sóttvarnir eru aðgengilegar í verkstæðismóttöku sem og öllum hjólbarðaverkstæðum.
- Bíllyklar eru sótthreinsaðir og afhentir í plastpokum.
- Starfsfólk verkstæðis nota einnota hanska við störf.
- Sett hafa verið upp sérstök borð í varahlutaverslun og verkstæðis móttöku til að halda ráðlögðum fjarlægðarmörkum.
- Allur samgangur milli deilda innan fyritækisins hafa verið takmarkaðar til að koma í veg fyrir smit.
Á meðan að þetta ástand varir biðjum við þig kæri viðskiptavinur vinsamlegast að:
- Virða þau fjarlægðarmörk sem ráðlagt er af Almannavörnum
- Nota snertilausar greiðsluleiðir eða nota einnota hanska sem eru við posa.
- Nýta rafrænar leiðir í samskiptum eins og mögulegt er:
- Lágmarka allar heimsóknir í varahlutaverslun Kletts með því að ganga frá pöntunum í síma 590 5220 eða senda póst á varahlutir@klettur.is
- Lágmarka allar heimsóknir í söludeild hjólbarða með því að ganga frá pöntun í síma 590 5280 eða senda póst á dekk@klettur.is
- Allur umgangur um verkstæði frá utanaðkomandi aðilum eru bönnuð, vinsamlegast virðið það.
Engin breyting hefur verið gerð á hefðbundum afgreiðslutímum og er starfsfólk Kletts tilbúið til að aðstoða eftir fremstu getu.
Við vonum að allir sýni þessum tímabundnu en mikilvægum ráðstöfum skilning.