Undir með sumardekkin
Nú fer hver að verða síðastur í að skipta yfir á sumardekkin því að rúmlega mánuður er síðan löglegu tímabili nagladekkja lauk, og sektin er allt að 80 þúsund krónur. Andri Ellertsson, rekstrarstjóri hjólbarða hjá Kletti, segir að skiptingarskeiðið hafi verið seint á ferðinni í ár. „Þessi vortörn var sérstök að því leitinu til að páskarnir voru mjög seint þetta árið.