Framúrskarandi fyrirtæki
Við erum stolt af því að Klettur sé í hópi 2% íslenskra fyrirtækja sem teljast til Framúrskarandi fyrirtækja samkvæmt greiningu Creditinfo. Að ná þessum árangri tíunda árið í röð er einstakur áfangi, en sá hópur telur um 180 fyrirtæki á Íslandi.
Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri
Klettur er jafnframt í hópi 2,9% íslenskra fyrirtækja sem teljast Fyrirmyndar fyrirtæki í rekstri 2024 að mati Viðskiptablaðsins og Keldunnar.
Þessi árangur væri ekki mögulegur án stuðnings og trausts okkar viðskiptavina og framúrskarandi starfsfólks, sem sýnir metnað og fagmennsku á hverjum degi. Við þökkum ykkur kærlega fyrir og erum staðráðin í að halda áfram á þessari vegferð.